Uppfært 27. september 2026
Notkunarskilmálar / Terms of Service
Hér er lýst kaupum og aðgangi að Android-útgáfu Dönskunnar. Appið er tilbúið til niðurhals; kaup verða opnuð þegar Creem hefur samþykkt verslunina.
Um þjónustuna
Danskan er tungumálanámsapp fyrir íslenskumælandi fullorðna sem vilja æfa dönsku. Rekstraraðili appsins er María Helgadóttir, undir heitinu NexoItec, Reykjavík, Íslandi. Þjónustunetfang er hello@nexoitec.com.
Android-útgáfan þarf Android 8 eða nýrra, Google-innskráningu, nettengingu og hljóðnema fyrir talæfingar. Uppsetningarleiðbeiningar lýsa aðganginum nánar.
Verð og endurnýjun
- Grunnáskrift: 36 € á mánuði. Hún endurnýjast sjálfkrafa mánaðarlega þar til henni er sagt upp.
- Stig 2: 7,20 €. Einskiptiskaup á viðbótarnámskeiði.
- Stig 3: 7,20 €. Einskiptiskaup á viðbótarnámskeiði.
Skattar eru innifaldir í uppgefnu verði. Gjaldmiðill greiðslunnar er evra. Krónuverð á kynningarsíðunni er aðeins námundað viðmið á tilgreindri dagsetningu; endanleg krónutala fer eftir gengi og mögulegum gjaldeyrisgjöldum kortaútgefanda eða banka.
Virk grunnáskrift er nauðsynleg til að nota viðbótarnámskeiðin. Stig 2 opnast við 80% framvindu á stigi 1; stig 3 við 80% framvindu á stigi 2. Kaupin haldast skráð á aðganginn á meðan þú nærð þeirri framvindu.
Greiðsla og afhending aðgangs
Creem er skráður seljandi greiðslunnar („merchant of record“) og annast greiðslumóttöku, útreikning skatta og kvittun. Danskan annast appið, námsaðgang og aðstoð við notkun þess. Kaupendaskilmálar Creem gilda um viðskiptin við Creem.
Notaðu sama netfang við greiðslu og við Google-innskráninguna í Danskan. Aðgangur verður virkur þegar greiðslan hefur verið staðfest og tengd við aðganginn þinn. Farðu aftur í appið eftir kaup og veldu „Endurnýja aðgangsstöðu“.
Ef greiðsla hefur farið fram en aðgangur opnast ekki skaltu hafa samband á hello@nexoitec.com. Nóg er að senda netfangið og auðkenni kvittunar; ekki senda kortaupplýsingar.
Uppsögn og endurgreiðslur
Engin ársbinding fylgir grunnáskriftinni. Segja má upp hvenær sem er með „Stjórna áskrift“ undir „Áskrift og námskeið“ í appinu. Uppsögn stöðvar næstu endurnýjun og aðgangur helst út greitt tímabil.
Viðbótarnámskeið haldast skráð á aðganginn eftir uppsögn, en virk grunnáskrift þarf að vera til staðar til að nota þau. Að segja upp er ekki það sama og að óska eftir endurgreiðslu.
Ef eitthvað er að kaupunum, afhendingunni eða virkni vörunnar skaltu hafa samband á hello@nexoitec.com. Beiðnir um endurgreiðslu og réttur til að falla frá kaupum fara eftir gildandi neytendalögum og kaupendaskilmálum Creem; Creem framkvæmir endurgreiðsluna. Þessi skilmáli takmarkar ekki lögbundin réttindi þín.
Notkun og niðurstöður
Aðgangurinn er ætlaður þér til eigin náms. Þú berð ábyrgð á þeim texta og upptökum sem þú velur að senda. Ekki nota þjónustuna til ólöglegra athafna, miðla aðgangi eða reyna að komast fram hjá aðgangsstýringu.
Framburðarmat og svör kennarans byggjast á gervigreind. Kerfin geta heyrt rangt, misst af orðum eða gefið ónákvæmar skýringar. Einkunnir eru leiðsögn í æfingu, ekki formlegt prófskírteini eða trygging fyrir ákveðnum námsárangri.
Framvinda og glósur geymast í Android-símanum. Ekki er sjálfvirk samstilling þeirra við iPhone eða annan síma. Apple-áskrift flyst ekki sjálfkrafa yfir í Android.
Uppfærslur og persónuvernd
Leiðbeiningar um Android-uppfærslur birtast á þessari vefsíðu. Geymdu appið uppsett meðan þú uppfærir til að varðveita staðbundin gögn.
Persónuverndartextinn lýsir gögnum sem eru notuð við innskráningu, talæfingar, kaup og samskipti. Hafðu samband á hello@nexoitec.com með spurningar eða beiðnir um gögn.
Danskan fyrir Android