Hlustaðu og æfðu
Veldu Freju eða Jeppe, stilltu hraðann og berðu eigin upptöku saman við fyrirmyndina. Orðamat hjálpar þér að finna hvað þarf meiri æfingu.
Danskan
Fyrir Android · Útgáfa 0.5
Æfðu dönsku með íslenskum útskýringum. Hlustaðu á Freju eða Jeppe, æfðu framburðinn og prófaðu samtölin sem bíða þín í Danmörku.
Útgáfa 0.5 · 10,8 MB · Android 8 eða nýrra
Þú getur sótt Danskan og skráð þig inn með Google. Námsaðgangur krefst grunnáskriftar; kaup verða opnuð þegar Creem hefur samþykkt verslunina. Fylgstu með stöðunni hér á síðunni.
Byrjaðu í Grunninum
Þrjú námsstig, 17 flokkar og 134 æfingar. Þú byrjar á einföldum orðum og setningum og bætir við á þínum hraða.
Veldu Freju eða Jeppe, stilltu hraðann og berðu eigin upptöku saman við fyrirmyndina. Orðamat hjálpar þér að finna hvað þarf meiri æfingu.
Æfðu að sækja um CPR-númer, tala við lækninn, hitta nágranna og fara í atvinnuviðtal. Byrjaðu með handriti og reyndu síðan með eigin orðum.
Spurðu um dönskuna, safnaðu í glósubók og rifjaðu upp erfið orð. Hlustunarpróf, tölur og krossapróf gefa þér fjölbreytni.
Framburðarmat og svör kennarans byggjast á gervigreind og geta verið ónákvæm. Matið er hjálpartæki við æfingu, ekki formleg staðfesting á tungumálakunnáttu.
Android · Verð við opnun
Grunnnámskeiðið, talæfingar og námsverkfærin.
Endurnýjast mánaðarlega. Þú getur sagt upp hvenær sem er og heldur aðgangi út greitt tímabil.
Að bjarga sér: símtöl, kvartanir, félagslíf og þátíð.
Virk grunnáskrift er nauðsynleg. Opnast við 80% framvindu á stigi 1.
Að eiga heima: flóknari samtöl, rökræður og danska á eðlilegum hraða.
Virk grunnáskrift er nauðsynleg. Opnast við 80% framvindu á stigi 2.
Krónutölurnar eru námundað viðmið miðað við gengi Seðlabanka Íslands 25. september 2026: 1 € = 136,60 kr. Greitt er í evrum; endanleg krónutala fer eftir gengi og mögulegum gjöldum bankans þíns. Creem sér um greiðslur og kvittanir þegar sala verður opnuð. Notkunarskilmálar / Terms of Service
Nei. Danskan er ætluð Android-símum með Android 8 eða nýrra og Google-innskráningu. Útgáfan hefur verið prófuð á Samsung Galaxy S22 Ultra; virkni á öðrum tækjum hefur ekki öll verið sannreynd.
Appið er ætlað íslenskumælandi fólki, meðal annars þeim sem búa í Danmörku. Þú þarft nettengingu fyrir talgreiningu, raddir og samtöl. Android-verðið er í evrum.
Nei. Grunnáskriftin endurnýjast mánaðarlega og henni má segja upp hvenær sem er. Aðgangur helst út greitt tímabil. Viðbótarnámskeiðin eru keypt einu sinni en notkun þeirra krefst virkrar grunnáskriftar.
Ekki í þessari útgáfu. Android geymir framvindu og glósur í símanum. Hvorki framvinda né Apple-áskrift flyst sjálfkrafa yfir í Android.
Nei. Appið er sótt beint í símann og þarf enga tengingu við tölvu til að æfa. Upptaka og samskipti við kennarann nota nettengingu símans.
Þú heldur aðgangi út tímabilið sem þú hefur greitt fyrir. Keypt viðbótarnámskeið haldast skráð á aðganginn, en virka grunnáskrift þarf til að nota þau. Glósur og framvinda í símanum eru ekki þurrkaðar út við uppsögn.