Android
Sæktu Danskan beint í Android-símann þinn og skráðu þig inn með Google.
Áskrift er opin. Námsaðgangur krefst grunnáskriftar, sem þú kaupir inni í appinu.
Útgáfa 0.6 · Android 8 eða nýrra · 10,8 MB
Persónulegur kennari sem talar íslensku, hlustar á framburðinn þinn og undirbýr þig fyrir kommune, lækninn, leiguna og fyrsta daginn í vinnunni.
Danskan er íslenskt dönskunámsapp, hannað frá grunni fyrir íslenskumælandi fólk og raunverulegar aðstæður í Danmörku. Við markaðsleit í september 2026 fundum við ekkert annað app sem virðist vera sérhannað fyrir þann hóp.
Ekki enn eitt orðaforðaforritið. Danskan kennir þér að tala í þeim aðstæðum sem bíða þín í Danmörku, með kennara sem skilur hvar Íslendingar hrasa.
Danskan kemur ekki í stað dönskuskólans. Hún er æfingin á milli tímanna: framburðurinn, samtölin og kjarkurinn til að tala. Hún hjálpar þér hvort sem þú ert í danskuddannelse eða lærir á eigin vegum.
Freja leikur manneskjuna í afgreiðslunni í kommune, lækninn, leigusalann og fleiri. Þú talar og hún svarar, eins og í alvöru samtali.
Hún heyrir hvaða orð og jafnvel hvaða stafur brást, og sýnir þér hvernig hljóðið er myndað. Mjúka d-ið, stød og r-ið verða þín.
Þú veist alltaf hvað þú átt að segja: danskan efst og íslenskan undir. Þegar þú ert tilbúin eða tilbúinn talarðu frjálst.
Hægðu á röddinni, smelltu á hvert orð til að heyra það aftur og berðu þína upptöku saman við hennar.
CPR-númer, leigusamningur, bankinn, læknirinn, vinnuviðtal, leikskólinn, nágranninn. Yfir 100 æfingar í þremur áföngum, frá fyrstu kveðju til launaviðræðna.
„Hvernig segi ég…?“ „Hvað þýðir…?“ Freja svarar á íslensku og allt fer í glósubókina þína.
Veldu verð fyrir þinn síma. Kaup eru opin á Android; iPhone-útgáfan er í skoðun hjá Apple.
Engin ársbinding. Þú getur sagt grunnáskriftinni upp hvenær sem er og heldur aðgangi út greitt tímabil. Keypt stig opnast strax með virkri grunnáskrift.
Krónutölurnar eru námundað viðmið miðað við gengi Seðlabanka Íslands 25. september 2026: 1 € = 136,60 kr. Greitt er í evrum; endanleg krónutala fer eftir gengi og mögulegum gjöldum bankans þíns.
Við útgáfu fara kaup fram í App Store. Áfangarnir eru keyptir einu sinni og áskriftin helst óbreytt. Engin binding: þú getur sagt upp hvenær sem er í App Store.
Skráðu þig til að fá tilkynningu þegar Danskan kemur í App Store.
Hefurðu prófað Danskan? Segðu öðrum frá. Umsagnir birtast eftir yfirferð.
Áskrift er opin á Android. iPhone-útgáfan er í skoðun hjá Apple og kemur vonandi út á næstu tveimur vikum.
Danskan er að ljúka fyrri umferð prófana.